Stök aðgerð

Almennar aðgerðir

1. Framkvæmdasjóður

Varið verði 12 millj. kr. árlega, samtals 60 millj. kr. af fjárlögum, til verkefna úr forvarnaáætlun þessari á tímabilinu 2026–2030. Styrkt verði samstarfsverkefni á vegum ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og samstarfsverkefni ráðuneyta og stofnana, félagasamtaka eða háskólasamfélagsins. Dómsmálaráðuneytið auglýsi eftir umsóknum frá ráðuneytum og úthluti styrkjum að undangengnu faglegu mati ráðuneytisins. Reglur sjóðsins og umsóknareyðublöð verði kynnt fulltrúum ráðuneyta í kjölfar gildistöku áætlunarinnar.

Markmið: Innleiða og hrinda í framkvæmd aðgerðum í áætlun þessari.

Mælikvarði: Fyrir lok gildistíma áætlunarinnar hafi verið úthlutað 60 millj. kr. til verkefna innan áætlunarinnar. 

Kostnaðaráætlun: 60 millj. kr.

Ábyrgðaraðili: Dómsmálaráðuneyti.

Tímarammi: 2026–2030.

Staða aðgerðar:

Verkefnið er komið vel á veg. Dómsmálaráðuneytið hefur sent tilkynningu til þeirra ráðuneyta sem ábyrgð bera á aðgerðum í forvarnaáætlun um að opið sé fyrir umsóknir um styrki í Framkvæmdasjóð vegna aðgerða sem hefjast eiga 2026.

Staða verkefnis

Komið vel á veg
Var efnið hjálplegt?