Stuðningur við inngildingu í háskólum
Stutt verði við inngildingu hinsegin fólks og annarra jaðarsettra hópa í háskólastarfi. Fræðsluefni um hinsegin- og jafnréttismál verði þróað í samstarfi við hagsmunasamtök og miðlað annars vegar til starfsfólks og hins vegar til háskólanema. Nemendafélög verða hvött til að skapa stuðningsnet og vettvang fyrir hinsegin háskólanema.
Þróaður verði samræmdur farvegur fyrir tilkynningar um áreitni, fordóma og hatursorðræðu innan háskólasamfélagsins.
Markmið aðgerðarinnar verði að auka sýnileika og þátttöku hinsegin háskólanema og starfsfólks í háskólastarfi ásamt því að bæta vellíðan hinsegin fólks í íslenskum háskólum með mælanlegum umbótum á fræðslu, stuðningi og ferlum.
Tímaáætlun: 2026–2028.
Ábyrgð: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Skrifstofa háskóla og vísinda og jafnréttisfulltrúar háskólanna.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Staða aðgerðar:
Unnið er að aðgerðinni með verkefninu Betri skilyrði fyrir jaðarsetta hópa í háskólastarfi sem hlaut styrk úr framkvæmdasjóði hinsegin málefna og unnið verður með Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA), Jafnréttisráði HA, stúdentaráði HA og ERGI – félagi hinsegin stúdenta á Norðurlandi. Verkefnið tekur mið af því að Háskólinn á Akureyri er staðsettur á landsbyggðinni, þar sem þjónusta og stuðningur við hinsegin stúdenta getur verið takmarkaðri en á höfuðborgarsvæðinu, og miðar því að því að skapa öruggan vettvang fyrir raddir hinsegin stúdenta og annarra jaðarsettra hópa. Með 3–5 rýnihópaviðtölum verða greindar upplifanir, hindranir og tillögur nemenda að úrbótum, sem nýtast beint við markmið aðgerðarinnar um aukna inngildingu, sýnileika, þátttöku og vellíðan hinsegin fólks í háskólastarfi. Nú er unnið að því að taka niðurstöður saman í skýrslu. Þær verða nýttar til að styðja við mælanlegar umbætur á fræðslu, stuðningi, stuðningsnetum nemenda og verkferlum vegna tilkynninga um áreitni, fordóma og hatursorðræðu innan háskólasamfélagsins.