E. Jafnrétti í menntun og íþrótta- og æskulýðsstarfi

Brotthvarf drengja og nemenda með annað móðurmál en íslensku úr námi

Ástæður brotthvarfs úr námi á framhaldsskólastigi verði skoðaðar, sérstaklega meðal drengja og nemenda með annað móðurmál en íslensku. Samhliða verði niðurstöður rannsókna og önnur þekking um orsakir brotthvarfs nýttar til stefnumótunar, m.a. til að móta markvissari úrræði gegn brotthvarfi úr námi.
    Markmið aðgerðarinnar verði að draga úr brotthvarfi drengja og nemenda með annað móðurmál en íslensku úr námi á framhaldsskólastigi.

Tímaáætlun: 2026–2029.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneytið.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 4.1, 4.3, 4.5, 4.6, 4.c og 5.1.

Staða aðgerðar:

Verkefnið er komið vel á veg. Greining á nýnemabrotthvarfi úr framhaldsskólum fer fram árlega. Jafnframt er unnið að nýjum nemendagrunni fyrir framhaldsskóla sem verður tengdur nemendagrunni á grunnskólastigi. Grunninum er ætlað að bæta upplýsingar um námsferil og brotthvarf nemenda og skapa betri forsendur til að greina tengsl brotthvarfs við, m.a. fyrri námsárangur, viðveru og uppruna.

Staða verkefnis

Komið vel á veg
Var efnið hjálplegt?