Endurskoðun á jafnlaunakerfi
Lög og reglur um jafnlaunakerfi fyrirtækja og stofnana verði endurskoðuð með tilliti til reynslu af kerfinu og ábendinga sem fram hafa komið um framkvæmd þess.
Markmið aðgerðarinnar verði að einfalda gildandi lög og reglur um jafnlaunakerfi til að gera ferlið skilvirkara og draga úr kostnaði við framkvæmd þess að teknu tilliti til markmiða laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.
Tímaáætlun: 2026–2029.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.1, 8.5, 8.8, 16.5, 16.10 og 16.b.
Staða aðgerðar:
Aðgerðinni telst lokið. Lög nr. 53/2026 um breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020 (skýrslugjöf um kynbundinn launamun) tóku gildi 1. september og samhliða tók gildi Reglugerð nr. 946/2026 um framkvæmd skýrslugjafar um kynbundinn launamun og eftirlit Jafnréttisstofu.