Fjórða landsáætlun Íslands um framkvæmd ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um konur, frið og öryggi
Unnið verði markvisst að framkvæmd og kynningu á fjórðu landsáætlun Íslands um konur, frið og öryggi 2025–2030. Verkefnið byggist á ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna númer 1325 frá árinu 2000 og tengdum ályktunum sem kveða m.a. á um framlag kvenna til öryggis og friðar í heiminum.
Markmið verkefnisins verði að vinna að framfylgd ályktana öryggisráðsins með markvissri framkvæmd aðgerða í fjórðu landsáætlun Íslands um konur, frið og öryggi.
Tímaáætlun: 2026–2029.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Ábyrgð: Utanríkisráðuneytið.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5 og 16.
Staða aðgerðar:
Markvisst hefur verið unnið að framkvæmd Fjórðu landsáætlunar Íslands um konur, frið og öryggi 2025–2030. Í nóvember 2025 var haldið alþjóðlegt málþing við Háskóla Íslands þar sem framgangur ályktunar 1325 og tengdra ályktana öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna var ræddur. Málþinginu var ætlað að efla umræðu, miðla reynslu og þekkingu og styrkja alþjóðlegt samstarf á þessu sviði.