Heiðursofbeldi og neikvætt félagslegt taumhald
Fræðsla um einkenni og birtingarmyndir heiðursofbeldis og neikvæðs félagslegs taumhalds verði efld meðal starfsmanna í félagsþjónustu, lögreglu, innan skóla og á frístundasviði, innan heilbrigðiskerfisins og hjá öðrum viðeigandi aðilum. Unnið verði fræðsluefni og því miðlað meðal framangreindra aðila.
Markmið aðgerðarinnar verði að efla þekkingu á birtingarmyndum neikvæðs félagslegs taumhalds og heiðursofbeldis og hvernig bregðast skuli við því.
Tímaáætlun: 2026–2027.
Kostnaðaráætlun: 5 millj. kr.
Ábyrgð: Félags- og húsnæðismálaráðuneytið.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.3 og 16.1.
Staða aðgerðar:
Fyrsta hluta verkefnisins er lokið en félags- og húsnæðismálaráðuneytið, í samvinnu við Ríkislögreglustjóra, stóð fyrir námskeiði fyrir fagaðila um PATRIARCH-V2 matstækið fyrir heiðursofbeldi. Markmiðið með námskeiðinu var að byggja upp sérhæfða þekkingu og færni við notkun áhættumats vegna heiðursofbeldis og stuðla þannig að faglegum og samræmdum viðbrögðum við slíkum málum.