Innleiðing verklags í heilbrigðisþjónustu til handa þolendum ofbeldis
Unnið verði mat á árangri á verklagi sem innleitt var í heilbrigðiskerfinu við móttöku þolenda heimilisofbeldis. Teknar verði saman tölfræðiupplýsingar úr rafrænu skráningarformi fyrir heimilisofbeldismál og kallað eftir upplifun heilbrigðisstarfsmanna af verklaginu.
Markmið aðgerðarinnar verði að fá upplýsingar um birtingarmyndir heimilisofbeldis í heilbrigðiskerfinu á Íslandi og meta reynslu af nýju verklagi.
Tímaáætlun: 2026–2029.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Ábyrgð: Heilbrigðisráðuneytið.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.2 og 16.1.
Staða aðgerðar:
Verkefnið er komið vel á veg. Verkefnastjóri hefur verið ráðinn til að vinna matið. Búið er að óska eftir gögnum frá LSH. Verið er að hanna spurningalista sem á að senda á heilbrigðisstarfsfólk sem starfar innan málaflokksins.