Jafnrétti í íþróttastarfi
Unnið verði að virkri þátttöku í sameiginlegu verkefni Evrópusambandsins og Evrópuráðsins um aukið jafnrétti í íþróttum.
Markmið aðgerðarinnar verði að marka farveg stefnumótunar í jafnréttismálum í íþróttum.
Tímaáætlun: 2026–2028.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneytið í samstarfi við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.5 og 16.7.
Staða aðgerðar:
Vinna er hafin við verkefnið „Active and Equal“, samiginlegt verkefni Evrópusambandsins og Evrópuráðsins um heilsu kvenna og jafnrétti í íþróttum. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Ungmennafélag Íslands hafa unnið fræðsluefni í samstarfi við Knattspyrnusamband Íslands. Verkefnið tengist jafnframt verkefni um konur í íþróttum, þar sem unnið er að fræðsluefni um þjálfun kvenna og heilsu þeirra í íþróttum.