E. Jafnrétti í menntun og íþrótta- og æskulýðsstarfi

Jafnréttisfræðsla á öllum skólastigum

    Til þess að tryggja að jafnréttisfræðsla sé fléttuð inn í kennslu á öllum skólastigum, sbr. 15. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020, verði gæðaviðmið við mat á starfi leik-, grunn- og framhaldsskóla og frístundastarfi grunnskóla endurskoðuð. Þannig verði stuðlað að markvissri jafnréttisfræðslu samkvæmt aðalnámskrám. Jafnframt verði gert ráð fyrir úttekt á jafnréttisfræðslu í þriggja ára áætlun mennta- og barnamálaráðuneytis.
    Markmið aðgerðarinnar verði að flétta jafnréttisfræðslu inn í kennslu á öllum skólastigum.
 

Tímaáætlun: 2026–2029.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneytið í samstarfi við Jafnréttisstofu.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 3, 4 og 5.

Staða aðgerðar:

Verkefnið er komið vel á veg. Endurskoðun gæðaviðmiða fyrir framhaldsskóla er lokið og hefur viðmiði um jafnréttis- og kynjafræðslu verið bætt við. Endurskoðun gæðaviðmiða fyrir grunnskóla stendur yfir og er gert ráð fyrir sambærilegum viðbótum. Áætlað er að þau verði birt í upphafi árs 2027. Vinna við gæðaviðmið fyrir leikskóla er ekki hafin. Úttekt á framkvæmd jafnréttisfræðslu í skólum er ráðgerð á árinu 2028.

Staða verkefnis

Komið vel á veg
Var efnið hjálplegt?