F. Alþjóðastarf

Málsvarastarf og aðgerðir Íslands á alþjóðavettvangi í þágu kynjajafnréttis

Eflt verði alþjóðlegt málsvarastarf og aðgerðir Íslands á sviði kynjajafnréttismála. Byggt verði á árangri undanfarinna ára með það að markmiði að sporna við víðtæku bakslagi á sviði kynjajafnréttismála. Verkefnið feli í sér eftirfarandi þætti:
     a.      Samráð og samstarf við líkt þenkjandi ríki, alþjóðastofnanir og félagasamtök um eflingu kynjajafnréttis og þátttöku í aðgerðabandalögum á því sviði.
     b.      Stutt verði við sérstök jafnréttisverkefni í þróunarríkjum í samræmi við áherslur í stefnu Íslands á sviði alþjóðlegrar þróunarsamvinnu 2024–2028.
     c.      Sinnt verði málsvarastarfi og verkefnum sem miða að því að fá karlmenn og drengi að jafnréttismálum, m.a. með skipulagningu viðburða, svo sem rakarastofuráðstefna á vettvangi alþjóðastofnana.
     d.      Áhersla verði lögð á kynjajafnrétti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna á meðan Ísland á sæti í ráðinu 2025–2027.
     e.      Áhersla verði lögð á upplýsingamiðlun um jafnréttismál á Íslandi í gegnum vefmiðla og störf utanríkisþjónustunnar.
    Markmið aðgerðarinnar verði að efla málsvarastarf og aðgerðir á alþjóðavettvangi í þágu kynjajafnréttis.

Tímaáætlun: 2026–2029.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Ábyrgð: Utanríkisráðuneytið.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.

Staða aðgerðar:

Utanríkisráðuneytið hefur lagt mikla áherslu á öflugt málsvarastarf og markvissar aðgerðir á alþjóðavettvangi til að sporna gegn bakslagi í kynjajafnréttismálum, m.a. með umræðum um áskoranir og tækifæri í jafnréttismálum í nærri tuttugu ríkjum í tengslum við sýningar á heimildarmyndinni Dagurinn þegar Ísland stöðvaðist um kvennaverkfallið 1975. Auk þess hefur verið lögð áhersla á að virkja karla og drengi í jafnréttisbaráttunni, m.a. á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og alþjóðlegum ráðstefnum. Þá var stutt við rannsókn UN Women og Equimundo á stafrænu kynbundnu ofbeldi og uppfærslu á Barbershop Toolkit 2.0 verkfærakistu UN Women.

Staða verkefnis

Komið vel á veg
Var efnið hjálplegt?