A. Kyn, áhrif og þátttaka
Samningur Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum
Samningur Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum verði markvisst kynntur. Útbúið verði kynningarefni um samninginn ætlað almenningi á íslensku, ensku og á auðskildu máli. Þá verði haldinn kynningarfundur um samninginn með samtökum kvenna sem standa vörð um réttindi kvenna.
Markmið aðgerðarinnar verði að auka vitund um réttindi sem samningurinn á að tryggja.
Tímaáætlun: 2026–2027.
Kostnaðaráætlun: 3 millj. kr.
Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið í samráði við Jafnréttisstofu.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.
Staða aðgerðar:
Vinna er hafin við undirbúning að gerð kynningarefnis með Jafnréttisstofu. Stefnt að kynningu og útgáfu síðla árs 2027.
Staða verkefnis
Hafið