A. Kyn, áhrif og þátttaka

Samþætting kynja- og jafnréttissjónarmiða fyrir kjörna fulltrúa og stjórnendur sveitarfélaga

Jafnréttisstofa haldi námskeið og veiti fræðslu um samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða fyrir kjörna fulltrúa og stjórnendur sveitarfélaga. Fræðsluefni verði í framhaldinu aðgengilegt á vef Jafnréttisstofu og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
    Markmið aðgerðarinnar verði að kynna þau verkfæri sem í boði eru þegar kemur að kynjasamþættingu og kenna nýtingu þeirra við stefnumótun og verklagsþróun í þágu sveitarfélaga og íbúa þeirra.

Tímaáætlun: 2026–2028.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Ábyrgð: Innviðaráðuneytið og Jafnréttisstofa.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.

Staða aðgerðar:

Kynningarferli er í gangi. Kynningar fyrir nýkjörnum fulltrúum og stjórnendum sveitarfélaga á þeim námskeiðum sem í boði eru um samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða standa yfir. 

Staða verkefnis

Komið vel á veg
Var efnið hjálplegt?