B. Kynjuð tölfræði og mælaborð

Samþætting kynja- og jafnréttissjónarmiða við úthlutanir úr Loftslags- og orkusjóði

Unnið verði að greiningu á fyrirliggjandi kyngreindum gögnum í tengslum við styrkveitingar Loftslags- og orkusjóðs til kaupa einstaklinga á rafbílum, með sérstakri áherslu á að meta hvaða áhrif styrkveitingar hafi haft á jafnrétti kynjanna.
    Markmið aðgerðarinnar verði að rannsaka áhrif styrkveitinga á jafnrétti kynjanna.

Tímaáætlun: 2026–2027.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Ábyrgð: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið í samstarfi við Loftslags- og orkusjóð/ Umhverfis- og orkustofnun.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5 og 7.

Staða aðgerðar:

Aðgerðinni telst lokið. Greiningu á kyngreindum gögnum um rafbílastyrki Loftslags- og orkusjóðs er lokið. Niðurstöðurnar gefa ekki tilefni til að álykta að styrkirnir hafi beinlínis haft áhrif á jafnrétti kynjanna en sýna að þeir nýttust hópum misjafnlega eftir búsetu. Hlutfallsleg nýting var mun minni á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu og hlutfall kvenna meðal styrkþega var lægra þar eða 35,5% á móti 40%. Í kjölfarið hefur Loftslags- og orkusjóður úthlutað 151 m.kr. til 17 verkefna sem fjölga hleðslustöðvum á landsbyggðinni um 21. Aðgerðinni er m.a. ætlað að draga úr aðstöðumun eftir búsetu og bregðast þannig við niðurstöðum greiningarinnar.

Staða verkefnis

Lokið
Var efnið hjálplegt?