E. Jafnrétti í menntun og íþrótta- og æskulýðsstarfi

Þekking starfsfólks í framhaldsskólum á sviði kynja- og jafnréttisfræða

Þekking kennara, stjórnenda og annars starfsfólks í framhaldsskólum á kynja- og jafnréttisfræðum verði efld, m.a. til að tryggja samþættingu innan skólanna og færni kennara til að kenna slík fög og flétta inn í aðra kennslu og starfsemi skólanna.
    Markmið aðgerðarinnar verði að auka þekkingu á kynja- og jafnréttisfræðum meðal kennara, stjórnenda og annars starfsfólks í öllum framhaldsskólum á landinu.

Tímaáætlun: 2026–2029.
Kostnaðaráætlun: 5 millj. kr.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneytið í samstarfi við menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið og Háskóla Íslands.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 3, 5, 10 og 16.

Staða aðgerðar:

Verkefnið er hafið. Rýni stendur yfir um hvaða leið verði farin til að efla þekkingu starfsfólks framhaldsskóla á sviði kynja- og jafnréttisfræða, þar á meðal hvort verkefninu verði fundinn farvegur innan Menntafléttunnar.

Staða verkefnis

Hafið
Var efnið hjálplegt?