Virðismat starfa í þágu launajafnréttis
Unnið verði að þróun og eftirfylgni virðismatskerfis í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna kjarasamninga sem gerðir voru í mars 2024. Stýrihópur um virðismat starfa í þágu launajafnréttis stýri vinnu um þróun og innleiðingu kerfisins sem byggist á fyrri tillögum aðgerðahóps um launajafnrétti og jafnrétti á vinnumarkaði. Í samræmi við yfirlýsinguna liggi nýtt kerfi fyrir eigi síðar en í árslok 2026.
Tímaáætlun: 2026.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið í samstarfi við fjármála- og efnahagsráðuneytið.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Einkum markmið 5.1, 5.4, 5.5, 5.a, 5.c, 8.7, 8.8, 10.3 og 10.4.
Staða aðgerðar:
Sérstakur stýrihópur sem leiddur er af dómsmálaráðuneytinu vinnur að þróun virðismatskerfis í þágu launajafnréttis. Stefnt er að því að nýtt virðismatskerfi verði tilbúið á vormánuðum 2027.