B.07. Óstaðbundin störf

 Aðgerðin er í vinnslu
  

Fréttir af aðgerðinni

4. nóvember 2026  27 milljónir til tólf vinnustaðaklasa á landsbyggðinni. 

2. september 2026  Opnað fyrir umsóknir um styrki til að styðja við uppbyggingu vinnustaðaklasa á landsbyggðinni.

24. mars 2026  Fimmtíu milljónir til 26 vinnustaðaklasa um land allt.

Desember 2025  Haustið 2024 var ákveðið að veita 150 m.kr. af byggðaáætlun til að fjölga óstaðbundnum störfum á landsbyggðinni. Ríkisstofnanir á höfuðborgarsvæðinu geta sótt um styrk vegna starfa sem ráðið verður í utan þess svæðis, eða ef starfsmaður flytur á landsbyggðina, og er styrknum ætlað að koma til móts við ferða-kostnað og leigu á aðstöðu í vinnustaðaklösum. Veita má styrk til stofnunar vegna starfs til allt að þriggja ára og nemur stuðningur við hvert starf að hámarki 2 m.kr. á ári. Í lok árs 2025 hafa verið gerðir ellefu samningar. Í desember 2025 var auglýst eftir styrkjum vegna vinnustaðaklasa. Þar er hægt að sækja um styrki til að koma nýjum vinnustaðaklösum af stað, vegna rekstrar eða langtímasamninga um fjölgun starfsfólks í vinnustaðaklösum. 

11. desember 2025  Opnað fyrir umsóknir um styrki til að styðja við uppbyggingu vinnustaðaklasa á landsbyggðinni.

4. desember 2024  Fyrstu samningarnir undirritaðir. 

10. október 2024  Opnað fyrir umsóknir um styrki.

9. október 2024  Rannsókn á reynslu af óstaðbundnum störfum. RHA vann rannsókn, með styrk af byggðaáætlun og frá  byggðarannsóknasjóði, um reynslu af óstaðbundnum störfum.  

28. ágúst 2024  150 milljónir í styrki til að fjölga óstaðbundnum störfum. Hér er jafnframt að finna frétt af fundi ríkisstjórnarinnar með sveitarstjórnarfólki á Norðurlandi vestra þar sem rætt var um fjölgun óstaðbundinna starfa á landsbyggðinni. 

17. apríl 2024  Styrkur úr byggðarannsóknasjóði til að rannsaka óstaðbundin störf.

25. mars 2024  Mögulegt væri að auglýsa 12% starfa hjá ráðuneytum og stofnunum ríkisins sem óstaðbundin. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA) gerði fyrir framkvæmdahóp um innleiðingu stefnu stjórnvalda um óstaðbundin störf. Í könnuninni komu einnig fram áhyggjur stjórnenda af auknum kostnaði sem óstaðbundin störf gætu haft í för með sér. Sjá frétt af vef Stjórnarráðsins: Óstaðbundin störf stuðla að búsetufrelsi

15. maí 2023  Ríkisstjórnin samþykkti í lok janúar 2023 að skipa framkvæmdahóp til að annast framkvæmd aðgerðarinnar. Hópurinn tók til starfa í apríl og hann skipa Aðalsteinn Þorsteinsson frá innviðaráðuneyti, Aldís Magnúsdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og Dagný Jónsdóttir frá forsætisráðuneyti.

Tengiliður   

Hólmfríður Sveinsdóttir, innviðaráðuneytinu - [email protected] 

Aðgerðin

Markmið: Að búsetufrelsi verði eflt með fjölgun atvinnutækifæra og auknum fjölbreytileika starfa á landsbyggðinni.

Stutt lýsing: Störf hjá ríkinu verði ekki staðbundin nema eðli starfsins krefjist þess sérstaklega, þannig að búseta hafi ekki áhrif á ráðningar. Tekið verði saman yfirlit um fjölda starfsstöðva/-rýma og fjölda ríkisstarfa sem eru óháð staðsetningu. Í kjölfarið verði sett markmið um fjölgun vinnurýma og óstaðbundinna starfa með sem jafnastri dreifingu um landið. Byggðir verði upp vinnustaðaklasar í samstarfi ríkis, sveitarfélaga og annarra aðila eftir atvikum þannig að góð vinnuaðstaða verði í boði sem víðast um landið. Skoðað verði hvort Byggðastofnun geti boðið lán með veði í slíkum klösum. Settir verði upp samkeppnispottar til að styðja annars vegar við uppbyggingu vinnustaðaklasa og hins vegar við einskiptiskostnað vegna starfa sem staðsett verða í skilgreindum vinnustaðaklösum eða annars staðar utan atvinnusóknar höfuðborgarsvæðisins. Árangur aðgerðarinnar verði metinn út frá fjölda vinnurýma og dreifingu þeirra um landið. Þá verði fylgst með nýtingu þeirra og fjölbreytni starfa.

  • Ábyrgð: Innviðaráðuneytið í samstarfi við forsætisráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið.
  • Framkvæmdaraðili: Byggðastofnun í samstarfi við ráðuneyti og ríkisstofnanir á höfuðborgarsvæðinu.
  • Dæmi um samstarfsaðila: Sveitarfélög, samtök þeirra og fyrirtæki.
  • Tímabil: 2022-2026.
  • Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Stefna í málefnum sveitarfélaga 2019–2033.
  • Tenging við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 9 og 11, einkum undir¬markmið 9.1, 9.4 og 11.a.
  • Tillaga að fjármögnun: 298 millj. kr. af byggðaáætlun. 
Var efnið hjálplegt?