Málefni

Ráðuneyti
Haraldur Jónasson / Hari

Málefni innviðaráðuneytisins eru skilgreind í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands (14.3.2025).

Samkvæmt forsetaúrskurði fer innviðaráðuneyti með mál er varða:

1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.

2. Samgöngur í lofti, á láði og legi, þar á meðal:

  1. Flugvelli, vegi, hafnir, vita og sjóvarnir.
  2. Skipulag og uppbyggingu samgöngukerfisins.
  3. Viðhald og rekstur samgöngukerfisins.
  4. Farþegaflutninga og farmflutninga landi, þ.m.t. almenningssamgöngur.
  5. Landflutninga.
  6. Samgönguöryggi.
  7. Samgönguvernd.
  8. Samgönguáætlun.
  9. Rannsókn samgönguslysa, þ.m.t. málefni rannsóknarnefndar samgönguslysa.
  10. Samgöngutækjaskrár.
  11. Eftirlit með skráningu og búnaði samgöngutækja.
  12. Eftirlit með loftferðum og umferð ökutækja og skipa.
  13. Leiðsögu-, vöktunar-, upplýsinga- og eftirlitskerfi samgangna.
  14. Áhafnir skipa
  15. Réttindamál fagaðila í skipum, loftförum og ökutækjum.
  16. Köfun.
  17. Slysavarnaskóla sjómanna.
  18. Skipagjald.
  19. Samgöngustofu.
  20. Vegagerðina.

 3. Sveitarstjórnarmál, þar á meðal:

  1. Stjórnsýslu og verkefni sveitarfélaga.
  2. Tekjustofna og fjármál sveitarfélaga.
  3. Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
  4. Mörk sveitarfélaga.
  5. IHS.

4. Byggðamál, þar á meðal:

  1. Byggðaáætlun og sóknaráætlanir.
  2. Svæðisbundna flutningsjöfnun.
  3. Póstþjónustu, póstrekstur og eftirlit með póstþjónustu.
  4. Meðferð og ráðstöfun aflamagns sem dregið er frá heildarafla samkvæmt 5. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða.
  5. Byggðastofnun. 

5. Fjarskipti og netöryggi, þar á meðal:

  1. Fjarskiptanet, þó ekki efni sem sent er á fjarskiptanetum.
  2. Fjarskiptaþjónustu og gagnaflutninga.
  3. Fjarskiptaöryggi.
  4. Öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða.
  5. Íslensk landshöfuðlén.
  6. Eftirlit með fjarskiptum.
  7. Rafræna auðkenningu og traustþjónustu fyrir rafræn viðskipti.
  8. Ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraðafjarskiptaneta.
  9. Fjarskiptastofu og málefni úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála.
Var efnið hjálplegt?