Stök aðgerð

Rannsókn brota, saksókn, réttarfarsreglur og verndarráðstafanir

15. Nálgunarbann og brottvísun af heimili

Lýsing aðgerðar: Lagðar verða til breytingar á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili nr. 85/2011 þess efnis að komið verði á rafrænu eftirliti með staðsetningarbúnaði, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, með þeim sakborningum sem sæta nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili, í þeim tilgangi að tryggja að slíkri ákvörðun sé framfylgt.

Markmið aðgerðar: Að auka vernd brotaþola gegn ofbeldi í nánu sambandi og umsáturseinelti og sporna gegn endurteknum brotum gegn nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili og bæta sönnunarfærslu vegna brota.

Ábyrgð: Dómsmálaráðuneyti.

Tímaáætlun: 2026.

Samstarfsaðilar: Ríkislögreglustjóri og lögregluembættin.

Tilefni: Tilmæli GREVIO nr. 283 um tíðari nýtingu yfirvalda á nálgunarbanni og brottvísun af heimili.

Staða aðgerðar:

Alþingi samþykkti 27. apríl 2026 frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili nr. 85/2011. Með breytingunum verður lögreglu heimilt að taka ákvörðun um að beita rafrænu eftirliti með staðsetningarbúnaði, t.a.m. með ökklabandi, samhliða ákvörðun um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Staða verkefnis

Lokið
Var efnið hjálplegt?