Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB
Kosning utan kjörfundar erlendis vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB sem fram fer 29. ágúst 2026, hefst 27. júlí nk.
Helsta markmið formennsku Íslands var að efla grundvallargildi Evrópuráðsins; lýðræði, réttarríkið og mannréttindi.
Þar að auki var lögð sérstök áhersla á umhverfismál, réttindi barna og ungmenna og jafnrétti í formennsku Íslands.
Leiðtogafundur Evrópuráðsins var haldinn í Reykjavík í maí 2023. Var það aðeins í fjórða sinn í 74 ára sögu stofnunarinnar sem leiðtogar aðildarríkja koma saman undir merkjum ráðsins.
Tilefni fundarins var ekki síst innrás Rússlands í Úkraínu. Á fundinum verða grundvallargildi Evrópuráðsins áréttuð svo og stuðningur ráðsins við Úkraínu. Lögð verður áhersla á að styrkja starf Evrópuráðsins með grunngildi stofnunarinnar – mannréttindi, lýðræði og réttarríki – að leiðarljósi.
Forsætisráðherra og utanríkisráðherra Íslands voru gestgjafar fundarins en auk aðildarríkja Evrópuráðsins var aðalframkvæmdastjórum Sameinuðu þjóðanna, ÖSE og OECD ásamt fleirum boðið að ávarpa fundinn.
Nánari upplýsingar um leiðtogafundinn má finna hér.
Kosning utan kjörfundar erlendis vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB sem fram fer 29. ágúst 2026, hefst 27. júlí nk.
Íslensk stjórnvöld hafa staðfest aðild sína að samningi um að koma á fót stjórnarnefnd sérstaks dómstóls vegna glæpa gegn frið í Úkraínu á vettvangi Evrópuráðsins.