28 ágúst 2023
Skrifstofa ráðherra óháð staðsetningu í haust
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, staðsetur skrifstofu sína víðs vegar um landið í haust. Málefni ráðuneytisins eiga við um allt land og á hverri starfsstöð býður ráðherra öll áhugasöm velkomin í opna viðtalstíma þar sem tækifæri gefst til að eiga stutt, milliliðalaust spjall um málefni á borði háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins.…