18 maí 2012
Rekstur Vinjar, athvarfs fyrir geðsjúka, tryggður
<p>Áframhaldandi rekstur Vinjar, athvarfs fyrir geðsjúka, hefur verið tryggður með samningi milli Rauða krossins, velferðarráðuneytisins, Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Vinafélags velunnara Vinjar, sem undirritaður var í dag. Velferðarráðuneytið leggur samtals tæplega 21 milljón króna til rekstursins til ársloka 2014.</p>