11 október 2012
Skýrsla Hagstofu Íslands um forsetakjör 30. júní 2012
<p>Hagstofa Íslands hefur gefið út skýrslu sína um forsetakjör 30. júní 2012.  Við kosningarnar voru alls 235.743 á kjörskrá eða 73,8% landsmanna. Af þeim greiddu 163.294 atkvæði eða 69,3% kjósenda. Kosningaþátttaka karla var 65,8% en kvenna nokkru hærri, 72,7%. Hlutfall utankjörfundaratkvæða af greiddum atkvæðum var óvenjuhátt eða 23,4%.<br>
</p>