28 desember 2014
Mannúðaraðstoð vegna átakanna í Sýrlandi og ebólufaraldurs
<p>Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hefur ákveðið að veita 32 milljónum kr. til mannúðaraðstoðar. Framlögin renna til Matvælaáætlunar SÞ, WFP, vegna mataraðstoðar við flóttamenn frá Sýrlandi og Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF,  til baráttunnar gegn ebólufaraldrinum í Vestur-Afríku</p>